HomePrintMail

 

Skátavörur eru til sölu hjá Heiðabúum

Búningarnir eru til sölu hjá foringjum eða starfsmanni,
Sími 860-4470


Einnig er hægt að kaupa skátavörurnar hjá Bandalagi íslenskra skáta, sími 550-9800 bis@skatar.is skoðið einnig vefsíðuna hérna

Hér að neðan gefur að líta upplýsingar um verð auk þess eru upplýsingar um það hvaða merki eiga að vera hvar á skátabúningnum

Kostnaður við búning á Drekaskáta (8-9 ára)

Hlutur: Verð:
Peysa  2.200 krónur                                                               
Klútur 450 krónur
Hnútur 400 krónur
Heiðabúamerki 250 krónur
Samtals: 3.300 krónur

Kostnaður við búning á skáta.

Hlutur: Verð:
Skyrta 4.500 krónur                                                                                  
Klútur 450 krónur
BÍS merki ofið 250 krónur
Alþjóðamerki ofið 250 krónur
Heiðbúamerki ofið 250 krónur
Hnútur 400 krónur
Samtals: 6.100 krónur

Myndir og frekari upplýsingar um hinar ýmsu skátavörur má nálgast á vefsíðu BÍS

Hvar eiga merkin að vera staðsett?  Hér að neðan gefur að líta úrdrátt úr reglugerð Bandalags íslenskra skáta varðandi þessa hluti.

B. Eftirtalin merki skulu borin á skátaskyrtunni.

  1. Merki Bandalags íslenskra skáta skal bera fjóra sentrimetra ofan við vinstri brjóstvasa skátaskyrtunnar. Fyrir foringja og eldri skáta sem ekki bera vörðumerkin má merkið vera tveimur sentimetrum ofan við vinstri brjóstvasa.
  2. Alþjóðamerki BÍS (merki inniheldur merki beggja alþjóðahreyfinganna) skal bera ofan við hægri brjóstvasa í sömu hæð og merki BÍS.
  3. Staðarmerki: Merki sveitarfélags, skátafélags, skátadeildar, skátasveitar eða skátaflokks skal bera á hægri upphandlegg neðan við axlarsaum, þannig að efst komi merki sveitarfélags, þá félags, deildar, sveitar og að lokum flokks.
  4. Skátavörðurnar skal bera á skátaskyrtunni undir merki BÍS, einn sentimeter ofan við vinstri bjróstvasa. Þegar skáti hefur unnið sér inn allar þrjár vörðurnar í einni átt, má hann færa þær yfir á vinstri upphandlegg rétt ofan við olnboga.
  5. Dróttskátavarðan, Gullnavarðan, og Forsetamerkið koma í stað skátavarðanna eftir því sem unnið er til þeirra.

Smellið hér til að lesa reglugerð um merki í heild sinni.

Smellið hér til að lesa reglugerð um skátabúninga í heild sinni.