HomePrintMail

 

Skátafélagið Heiðabúar á mjög gott skátaheimili sem staðsett er í hjarta Reykjanesbæjar, nánar tiltekið að Hringbraut 101 í Keflavík.
Nokkrir aðilar hafa verið að leigja húsnæðið undanfarinn ár og hentar það mjög vel undir fundi og hin ýmsu námskeið. Í dag er húsið leigt til 2 aðilla að staðaldri, það er annarsvegar sönghópur sem að hittist annan hvern föstudag og síðan er húsið leigt á hverjum miðvikudegi til Frumherja sem að hefur yfirumsjón með framkvæmd og eftirliti bílprófa á suðurnesjum.
Flestallir suðurnesjamenn sem hafa tekið bílpróf hin síðari ár hafa eflaust tekið það í skátaheimilinu í Keflavík.
Einnig hafa hinir ýmsu hópar gist í skátaheimilinu í skemmri tíma, það hafa verið skátahópar á ferðalögum um landið jafnt innlendir sem erlendir.

Umsjón með útleigu skátaheimilisins hefur:

Gréta Hjörleifsdóttir starfsmaður skátafélagsins
Gsm: 860 4470 netfang: hb@skatafelag.is