Óvissu(sund)ferð Víkverja 30/5-1/6 '03
Síminn hringdi þegar ég var nýkominn að efra hringtorginu á Hafnargötunni og Jenný spurði hvort það væri langt í mig.
Ástæðan jú ég var orðinn um hálftíma of seinn og allir krakkarnir voru mætt inní skátahús og tilbúin að leggja af stað í óvissuferðina. VÁ, var það sem heyrðist þegar þau sáu bílin sem við ætluðum að fara á í ferðina. 350 típa af ford Econoline með klósettrasgati (Extralangur) 14 manna bíll með 8 cylendra bensínmótor.
Það voru búnar að vera miklar vangaveltur um það hvert skyldi haldið, en svona var áætlað að gera.
Ferð í bláa lónið, Hellaskoðun, Sofa úti á Hellisheiðinni eða við Hengilinn, Úlfljótsvatn og tjalda, hike og einhver næturleikur og svo enda á sundi þegar farið yrði heim.
En svona varð ferðin.
Farið var útá Reykjanesbrautina og stefnan tekin inneftir og beygt inná Grindavíkurafleggeran og þá byrjuðu hinar ýmsu getgátur um það hvert ferðinni væri nú heitið. Skyldi það vera til Grindavíkur, krókaleið í Heiðaból eða hvað það nú var. Þegar komið var að afleggeranum að bláa lóninu mátti lesa Spurningu úr svip krakkana, beygir hann eða ekki? Jú hann beygði, og allir fóru í lónið og ég held að allir hafi skemmt sér hið besta þar.
Þegar við komum uppúr lóninu voru allir orðnir svangir og varð það úr að við komum við í Dominos (Megavika Dominos allar pizzur á 1000 kr.) og keyptum við tvær pizzur af stærstu gerð, sem voru fljótar að hverf ofaní þessa hungruðu Erni sem voru þarna á ferðinni. Áfram var haldið og nú átti að reyna að finna Raufarhólshellir, en það er skemst frá því að segja að hann fanst ekki enda ekki leitað vel því það fór að rigna eins og hellt væri úr fötu og áhugi enginn að fara útúr bílnum til þess að fara að skoða einhvern hellir, því var snúið frá því að fara í hellaskoðun að sinni.
Þá var stefnan tekinn að Henglinum eftir Nesjavallaleið og stoppað á þeim stað sem átti að sofa úti en það var svo mikið rok þar að haldið var áfram á Úlfljótsvatn og tjaldað þar eftir að ég var búinn að tala við Starfsmann á svæðinu sem leyfði okkur að tjalda á flötinni hjá blakvellinum, sem er fyrir framan Gilwellskálann. Það stóð á endum að þegar við byrjuðum að tjalda byrjaði að rigna. Það rigndi alla nóttina og langt framá laugardaginn.
Þegar liðið loks vaknaði um 11 leytið á laugardeginum eftir að hafa farið að sofa mjög seint eða um 2 um nóttina, var planað létt hike innað fossá og til baka ca 40 mín ganga sem mér fannst í sjálfu sér nóg á slíkum rigningar degi, spurðu krakkarnir hvort ekki væri hægt að fara í sund á Ljósafossi sem er heldur lengra en það sem ég hafði áætlað, en hugmyndin var góð svo ég samþykti það og úr varð 6 km fíluferðarhike því sundlaugin á Ljósafossi var lokuð og ekki útlit fyrir opnun í sumar. Þannig að það varð úr að við fórum í sund á Selfossi (í rétt um 3 tíma.).
Eftir sundið á Selfossi var tekinn smá krókur á leiðinni til baka og ekið upp hreppana, í gegnum Flúðir og tekið smá stopp við Brúarhlöð við Hvítá. Smástoppið varð að rúmlega klukkustundar löngu stoppi, þar sem ýmislegt var gert, s.s. smá brekkuklifur og náttúruskoðun. Í náttúruskoðuninni fanst þessi líka fína tjörn sem kemur innfrá Hvítá með smá vatni og sandi. Fyrst var dregið buxurnar uppfyrir hné og vaðið útá sandrifið sem var þarna, síðan var farið í sundföt til þess að ftin yrðu ekki blaut ef einhver skyldi detta í vatnið. Þá var mokað sandi yfir Fannar og síðan var farið að synda í vatninu sem var þokkalega kalt. Semsagt mikið busl og gamann.
Frá Hvítá var farið sem leið lá að Geysir þar sem annað stopp var tekið og hverirnir skoðaðir, Fylgst með Strokk taka nokkur gos, farið á klósett og smá nammi keipt.
Þegar við komum svo loks aftur á Úlfljótsvatn var hætt að rigna og farið að sjást í fagurbláann himininn. Þá var dregið fram grillið og allir grilluðu pylsur og hamborgara.
Síðar um kvöldið var svo sprett ofanaf gömlu eldstæði, (sem var þarna en síðan Dúfurnar voru þarna með tjaldbúðina sína á Gilwell) og kveiktur var síðan varðeldur þar sem við sungum nokkur skátalög.
Farið var seint að sofa en samt á misjöfnum tíma, það skreið bara hver í sinn poka þegar hann var orðin þreyttur. Ég fór í fjallgöngu um hálf tvö og kyrðin maður og útsýnið var himnest, þetta var sko VÁÁÁ ganga, Þingvallavatn og Úlfljótsvatn voru alveg RENNISLÉTT, heiðskírt og milt veður. Hansi, Fannar og Jenný fóru á eftir mér og þau urðu fyri þessari sömu tilfinningu.
Sunnudagsmorgunn heilsaði bjartur, fagur og HEITUR. Sannkallað stuttbuxnaveður. Þegar búið var að næra sig var farið að pakka saman, og þegar það var umþaðbil hálfnað fóru krakkarnir að sulla í Úlfljótsvatni þ.e. vaða og synda, og einu sinni sem oftar var það Fannar sem var fyrstur að framhvæma hlutina. Hann fékk viðurnefnið Fannar Fyrsti í þessari ferð.
Við vorum búin að hlaða bílinn og tilbúinn að leggja af stað um eitt leitið, EN þá kom babb í bátin. Bíllinn var orðin rafmagnslaus af smá notkun á geislaspilara með vélina stopp, en það bjargaðist vegna þess að það var fullt af fólki í skálunum og við gátum fengið start. Smá bensínstopp á Selfossi og síðan farið hjá Eyrarbakka og síðan allan suðurstrandarveginn til Grindavíkur og þaðan heim.
Þátttakendur í þessari ferð voru krakkarnir mínir úr Víkverjum Ernir þau: Erna, þóra, Hansi, Jenný, Fannar, Dúlla, Ósk og svo ég sjálfur Helgi.
Takk, takk fyrir góða ferð