HomePrintMail

 

Ferðasaga ;)

Sveitarútilega stúlknasveitarinnar er þá búin og tókst hún alveg frábærlega. Allir skemmtu sér konunglega og sólin var með okkur í för allan tímann. Við lögðum að stað kl 18:00 á föstudeginum í lítilli rútu sem við leigðum og Hrafnhildur var bílstjórinn okkar. Ottó Franz (hundurinn hennar Hrafnhildar) kom með og var sundlaugavörðurinn okkar. Við kíktum aðeins á Geysi og svo fórum við í bústaðinn í Úthlíð í Biskupstungum.

Allir komu sér fyrir og síðan var kvöldkaffi. Þetta varð þó Kakólaus ferð :( Laugardaginn byrjuðum við á því að vakna kl 9, morgunmatur og rútan festist. Síðan fóru allir í Hike sem var rosalega spennandi og í hádeginu grilluðum við pylsur ;) Verðið var svo æðislegt allan tímann að það var ekki hægt að biðja um betra. Eftir hádegi fóru stelpurnar í sund og skemmtu sér konunglega. Kvöldmaturinn var að sjálfsögðu glæsilegur að vana og við grilluðuð Lambalæri með öllu meðlæti. Síðan var farið í pottinn og farið í það að henda vatnsblöðrum. Svo var búið til eftirréttinn sem var litlar lummur með ávöxtum, sósu og rjóma ;)

Þegar allir voru orðnir saddir héldum við kvöldvöku og fórum út í næturleik sem sló í gegn. Allir voru orðnir svaka þreyttir og við steinsofnuðum. Sunnudagurinn byrjaði með því að við vöknuðum kl. 10:00...morgunmatur, eða réttara sagt, morgunverðarhlaðborð, og allir fóru að taka saman dótið sitt Stelpurnar fóru síðan í smá ratleik. Síðan grilluðum við sykurpúða, gengum frá, þrifum og fórum í leik. Þema útilegunnar var það að stelpurnar áttu að passa vatnsblöðru. Því miður sprungu þær allar fljótlega á laugardeginum en við störtuðum leiknum á ný á sunnudeginum og fórum í bráðarbana. Við fórum í þrautakóng með blöðrurnar og blöðrurnar sprungu hver á fætur annarri. Loksins kom Blöðruhaldarinn í ljós og við afhenti verlaun fyrir 1,2 og 3. sætið. 3.sætið vann Gauja, síðan 2 var hún Birgitta og blöðruhaldarinn 2006 var Elísabet. Loksins kom strákur á gröfu og dró upp rútuna og við héldum heim á leið. Þó ekki alveg.

Við stoppuðum á túni þarna rétt hjá og fengum okkur smá kaffitíma. Svo fórum við heim á leið. Við tókum smá ísstopp í Eden í Hveragerði, hittum þar trúð og fórum að syngja með honum skátalög og allir klöppuðu fyrir okkur. Allar stelpurnar vörðu með bros á vör.

Heimferðin gekk vel og við komum heim uppúr hálf 6, þreyttar, ánægðar og í skátastuði. Flokkarnir fengu að sjálfsögðu viðurkenningar fyrir útileguna og Spætur fengu fyrir Hikeið og besta flokkinn og Strumpar fyrir næturleikinn. Til hamingju með það stelpur ;) Þetta var síðasta ferð Hrafnhildar með okkur í stúlknasveitinni og við viljum þakka henni æðislega fyrir að vera með okkur. Ég þakka fyrir frábæra útilegu og vonandi verður eins útilega haldin á næsta ári. ;)
Hérna getið þið séð myndbands-brot sem við tókum. ,,ógeðslega nice ,, ( alltaf sagt eftir ferðirnar okkar).


Skátakveðja Íris Helga