Eftir smá byrjunarörðugleika er á svæðið var komið tókst okkur að koma ylfingunum í ró í tjöldum sínum og gekk þeim nú svona og svona að sofna, enda alltaf spenningur að sofa í tjaldi á svona mótum og tekur þá smá tíma að ná sér niður.
Næsta morgun voru allir vaktir kl. 08:00 og fóru að sinna morgunverkum og borða morgunverð, þá voru allir drifnir í tjöldin til að taka til í þeim fyrir tjaldbúðaskoðun sem tókst frábærlega og fengu Heiðabúar sitt fyrra viðurkenningarmerki fyrir snyrtilega tjaldbúð. Þetta var vel af sér vikið hjá krökkunum, lang fjölmennasta skátafélaginu á staðnum.
Ylfingarnir okkar fóru svo af stað með flokksforingjum sínum í póstaleikina, en vegna fjölda var þeim skipt í fjóra flokka. Þau voru að allan daginn í póstaleikjunum, sem samanstóðu af klifri og sigi, gróðursetningu, útieldun, bátasiglingu á vatninu, stórleikum og síðan ekki síst vatnasafaríinu.
Skátarnir og ylfingarnir rétt komu í tjaldbúð til að næra sig hjá okkar frábæra eldhúsliði, sem var alltaf tilbúið með heitan og staðgóðan mat, smurt brauð, ávexti o.s.frv. Þegar stund gafst til, t.d. þegar beðið var eftir kvöldmatnum á laugardeginum fórum við í okkar skemmtilegu hreyfileiki með krökkunum.
Eftir kvöldmatinn á laugardagskvöldinu var að sjálfsögðu ekta skátavarðeldur með söng, glensi og gamni að hætti skáta. Síðast en ekki síst þá vígði Heiðrún ylfingaforingi í Sandgerði 5 stúlkur inn í skátahreyfinguna.
Næsta morgun fór allt á sama veg, ræs, morgunverk, morgunmatur, tjaldbúðatiltekt og skoðun og að sjálfsögðu fengu Heiðabúar aftur viðurkenningarmerki fyrir tjaldbúðina sín , svo var haldið áfram í póstaleikjum fram að hádegismat og eftir matin var tjaldbúðin felld og gengið vel frá öllu. Mótsslit voru síðan kl. 14:00 og að því loknu var haldið heim í sömu rútunni og keyrði okkur á mótið og undir stýri var sami hjálplegi og frábæri bílstjórinn.
Veðrið var afar gott allan tíman, ringdi aðeins aðfararnótt sunnudagsins, en sem betur fer náðum við að þurka tjöldin áður en við felldum þau.
Það var svo um kl. 17:00 sem við komum í Keflavík, þreytt, en alsæl eftir frábært mót.
Ferðasöguna ritaði Vilborg Norðadahl