HomePrintMail

 

Óvissuferðin.
Eftir Þóru Björg í Örnum Víkverjum

Föstudagur
Jæja, mætt var í skátahúsið í Njarðvík kl. 18.00. Helgi mætti á þvílíkum bíl frá SS bílaleigunni, en svo var haldið af stað á brautina og beygt inná Grindavíkurafleggjera en eftir nokkrar mínútur föttuðu allir krakkarnir að það ætti að fara í Bláa Lónið, enda var sagt á undirbúningslistanum að “hafa sundfötin ofarlega”. Það var frábært í lóninu og allir slöppuðu mjög vel af en svo var haldið á veginn aftur.
Keyrt var í RVK og allir orðnir þokkalega svangir og þá föttuðum við krakkarnir að það væri megavika á Dominos og allar pizzurnar á 1000 kr. Við pöntuðum 2 stærstu pizzurnar og keyrðum út fyrir RVK og borðuðum pizzurnar með góðri matarlyst. Helgi keyrði síðan í átt að Þorlákshöfn og hann reyndi að finna hellir sem heitir Rauðahellir eða eitthvað (man ekki) (insk. Hellirinn heitir Raufarhólshellir.) en hann fann hann ekki en svo keyrði hann með okkur í átt að Nesjavallarvirkjun, og spurði hvort við vildum gista einhversstaðar í náttúrunni eða á tjaldstæði. Við ákváðum tjaldstæðið og brunað var með okkur á Úlfljótsvatn. Þar átti að vera ættarmót á tjaldstæðinu en kallinn sem sá um þetta leyfði okkur að gista nálægt blakvellinum. Við tjölduðum en reyndar hjálpuðu ekki allir við það.*

Laugardagur.
það var rigning þegar við vöknuðum en við létum það ekki á okkur fá heldur löbbuðum upp að einhverri sundlaug en Helga voru gefnar upp rangar upplýsingar og hún var lokuð. Við löbbuðum til baka og ákváðum að bruna í sund á Selfossi, og var það frábært en svo keyrðum við að Hvítá en við ætluðum að stoppa þar í 5 mín og anda og svoleiðis en við vorum þar í kl.tíma, allir voru að vaða í Hvítá en svo fór Hans, Fannar, Jenný og ég í sundfötin og stungum okkur á bólakaf en reyndar Jenný ekki. Það var þvílíkt gaman! Svo keyrðum við upp að Geysi og Strokk og sáum Strokk gjósa 3 sinnum! Svo keyrðum við Þingvallaleiðina á Úlfljótsvatn og fórum að grilla. Eftir það gerðum við smá brennu og sungum nokkur skátalög. Svo var farið að sofa en allir nema ég fóru í göngutúr. Mér var kalt og var kvefuð eftir daginn.*

Sunnudagur.
VÁ!!! Það var svo heitt þegar við vöknuðum og allir ruku í stuttbuxur og bol. Við sátum öll úti í grasinu og borðuðum morgunmat. Fannar vildi óður fara að synda í Úlfljótsvatni og fór ofaní svo fóru allir ofaní nema Helgi og Ósk. Helgi dýfði Jenný rétt ofaní, Dúllu var hrint og Ernu líka held ég. En ég auðvitað eins og alltaf tók stunguna ofaní. Svo fórum við að ganga frá tjaldinu of farangrinum en þegar allt var tilbúið til heimferðar þá gerðist nokkuð, bíllinn varð rafmagslaus. Það var búið að hlusta svo mikið á tónlist í honum en svo kom einhver kall og reddaði þessu. Við keyrðum krýsuvíkurleiðina heim og nokkrir hlógu vegna minninganna frá Krísuvíkurmóts árið 2001. Þetta var svo sannarlega skemmtileg ferð og ég þakka kærlega fyrir mig!!

Þóra Björg.
Þeir sem voru í þessari ferð voru:
Helgi, Hans, Fannar, Ósk, Guðríður, Jenný, Erna og ég (Þóra)

(Þið getið séð myndir frá ferðinni á www.biering.tk)