HomePrintMail

 

Landsmót skáta á Úlfljótsvatni - 1996
eftir Sigurð Guðjónsson

Sunnudagurinn 21.júlí rann upp bjartur og hlýr, þennan dag voru 38 skátar frá Heiðabúum á leið á viku mót, landsmót skáta á Úlfljótsvatni. Við samnýttum rútu með Víkverjum. Einnig voru 6 erlendir skátar með okkur í rútunni á leiðinni.
Kátt var á hjalla í rútunni og hafði rútubílstjórinn orð á því hversu hress hópur þetta væri.
Á Úlfljótsvatni tók á móti okkur glaða sólskin og blankalogn. Einnig bauð okkur fjöldinn allur af mýflugum velkomin á mótið. Þessar flugur voru meinlausar að mestu en voru ákaflega óþægilegar. Margir af mótsgestum keyptu sér hins vegar flugnanet sem varð óvart einkenni mótsins.
Um kvöldið á sunnudeginum var mótið sett með kvöldvöku og voru um 2000 skátar samankomnir á þessari kvöldvöku.

Mánudagsmorguninn var bjartur og fagur en þá upphófst dagskráin með tilheyrandi verkefnum.Sumir fóri í markferð (hike) meðan aðrir fóru í vatnaland og blotnuðu heil ósköp. Enn aðrir fóru í víkingabrölt og lærðu þar að búa til áhöld að hætti víkinga. Enn aðrir fóru að síga og klifra í þar til gerðum turni. Á kvöldin voru kvöldvökur eða aðrar samkomur. Einnig var starfrækt kaffihús fyrir eldri skáta og var hægt að fá þar kakó og vöfflur að hætti víkinga.
Ekki er hægt að segja annað en að veðrið hafi verið gott mestan hluta móts en það gerði smáskot á miðvikudeginum og var kynningadeginum frestað fram til laugardagsins. En á sunnudeginum var algjört úrhelli og þurftu allir að taka upp rennandi blaut tjöldin.
Mótsslitin voru í ausandi rigningu á sunnudeginum og voru þau góð. Eftir slit var hafist handa við að pakka saman og kveðja vini og vinkonur sem skátarnir höfðu kynnst á mótinu.
Þó flesta hafi langað til að vera lengur voru allir fegnir þegar rútan lagði af stað heim á leið.

(tölvuvinnsla Helgi Reynisson)