HomePrintMail

 

Haustferð ylfinga september 2003

Síminn byrjaði að hringja um 9 leitið um morguninn og hætti ekki fyrr en rúmlega 10. Ætlið þið virkilega að fara í ferðina í þessu veðri. Já við förum. Það er búið að kanna aðstæður í Háabjalla og það er allt í lagi þar.

Þannig byrjaði morguninn hjá mér. Við söfnuðumst samann uppí skátahúsi um 10 leitið um morguninn og smöluðum í bíla. Mætingin hefði mátt vera betri því að það voru unnin 5 verkefni úr austur bókinni þennan dag.
Þegar við komum í skóginn í Háabjalla byrjuðu krakkarnir í póstaleik þar sem unnin voru 3 verkefni, fundin 5 blóm, fundnir 3 ætir hlutir í náttúrunni og lært lög ferðamannsins. Á meðan fórum við Hranhildur í Gilwell fílinginn og bjuggum til afdrep inní skóginum. Þ.e. við tjölduðum stóru segli fyrir vindinn og rigningunna þannig að það var skjól við varðeldinn þar sem grillaðar voru pylsur í boði Samkaupa. Reyndar passaði það að þegar við vorum búinn að tjalda þá kom sól :) sem hélst alveg þangað til að við fórum heim. Síðan var farið í seinni 2 póstanna. Útieldun (poppað yfir opnum eldi ) og gróðursetning í boði Blómavals. Tvær mömmur aðstoðuðu okkur við póstadagskránna og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir aðstoðina. Síðar um daginn fórum við að baka klatta og hita kakó, allt yfir opnum eldi. Þessi dagur heppnaðist mjög vel þrátt fyrir að veðrið hefði mátt vera betra, en þar sem við erum sannir skátar þá látum við veðrið ekki aftra okkur.
Myndir er hægt sjá á myndasíðu.