HomePrintMail

 

Fyrirlestur sem að Helgi Biering hélt um skátastarf á fundi Kiwanisklúbbsins Hof í byrjun árs 2003, Helgi hefur einnig flutt þennan fyrirlestur á foreldraflokksfundi hjá Heiðabúum.

Upphaf skátastarfs.

Hvenær byrjaði skátastarf og hversvegna?

Þetta byrjaði allt saman 1907. Þá safnaði maður nokkur, Robert Stephenson Smyth Baden – Powell að nafni, saman nokkrum 13-16 ára strákum í útilegu á Brownsea eyju á Englandi og lét hann þá leysa ýmis verkefni þar á meðal að vefa sér mottur til að sofa á, gera skýli til að sofa undir og hnoða deig í brauð, sem var gert með þeim nýstárlega hætti að þeir fengu hveiti, ger og salt í buxnavasana og síðan var bleytt í öllu saman og deigið hnoðað saman í buxnavösunum. Reyndar við litla ánægju mæðra drengjanna eftirá. Ástæðan fyrir því að þessi gamli hermaður var að þessu var sú að árið 1903 þegar Baden – Powell kom heim til Englands eftir að hafa verið á Indlandi og í Afríku, rak hann augun í ýmsar þjóðfélagsmeinsemdir sem fylgja nútímamenningunni. S.s sérdrægni, smálarskapur og siðleysi.
·        B-P Var síðan aðlaður árið 1929 og hét þá Lord Robert baden – Powel of Gilwell

 

 Hver er svo sagan á bakvið skátahreyfinguna á Íslandi?

·        Fyrsti skátaflokkurinn var stofnaður á íslandi sumarið 1911. En þeir áttu erfitt uppdráttar vegna þess að stofnandin sem hafði átt heima í danmörku fór aftur til danmerkur um haustið, eftir aðeins nokkurra mánaða starf. 
·        Skátastarf er sagt hafa byrjað 1912 með stofnun Skátafélags Reykjavíkur. Nánar tiltekið 2 nóvember 1912 og við þá dagsetningu er miðað við sem afmælisdag Skátahreyfingarinnar á Íslandi.
·        Kvennskátarnir voru stofnaðir 7 júlí 1922, innan vébanda KFUK.
·        6 Júlí 1924 var stofnað Bís hið eldra. Þegar skátar úr Væringjum og Örnum úr Reykjavík og Birkibeinum frá Eyrarbakka héldu undirbúningsfund og sóttu um inngöngu í alþjóðabandalag skáta.
·        Landsambönd Dreng og kvenskátar sameinast árið 1944. Þá var núverandi Bandalag íslenskar skáta stofnað 

Skátastarf á suðurnesjum 

Hér á Suðurnesjum hafa verið nokkur skátafélög í gegnum tíðina í Keflavík voru og eru en...        

Heiðabúar stofnaðir 15 septamber 1937.
Í Sandgerði voru það Stafnverjar stofnaðir 1938.
Í Grindavík var Skátafélagið Þorbirningur  stofnað 10 Oktober 1943  
Í Ytri - Njarðvík voru stofnuð tvö skátafélög. Þau voru drengja skátafélagið Áfram. Stofnað  10 Desember 1946 og kvennskátafélagið Brynja Stofnuð 10 mars 1948.
Þau sameinuðust síðan í Skátafélagið Víkverja 22 febrúar 1957 Víkverjar (Heiðabúar sjá um starfið hjá Víkverjum veturinn 2002 – 2003).  

Úti í Garði var síðan stofnað skátafélagið Bergbúar  1948. 
Og síðan var stofnað Skátafélag í Vogum Vatnsleysuströnd og það hét Vogabúar Stofnað 1 apríl 1963 og lagði upp laupana líklega  veturinn 1978-79 En var svo endurreist sem deild innan Hraunbúa í Hafnarfirði  nokkrum árum seinna og er en starfandi sem slík. 
 
Í dag eru það bara Heiðabúar sem eru starfandi og fyrir utan Keflavík eru þeir með deildir sem eru staðsettar í Sandgerði, (Stafnbúar,) Garði, (Bergbúar) og  í Njarðvík, (Víkverjar) 

Skátaaðferðin 

Á Jamboree 1922 sagði Baden Powell að “Skátastarf sé lyf sem er búið til úr mörgum mismunandi efnum. Ef efnunum er ekki blandað rétt saman getur notandinn ekki kent lækninum um ef lyfið hefur ekki tilætluð áhrif.”

Skáta-kerfið byggist upp á mörgum þáttum sem mynda skáta-aðferðina.

Þessir þættir eru...

Skátalögin og heitið, þar sem einstaklingurinn lofar að gera það sem í hans valdi er til að standa við þann ramma sem skátastarfið er.
Athafnanám, þar sem krakkar læra að gera ýmsa hluti með því að reyna það sjálfir.
Flokkakerfi, þar sem flokkarnir eru byggðir upp með 6-8 einstaklingum sem allir stefna að sama markmiði og foringinn er ekki nema 2-3 árum eldri en hinir flokksmeðlimirnir.
Táknræn fyrirmynd, Til dæmis getur táknræn fyrirmynd ylfingsins verið dróttskátinn sem hefur aftur toppþjálfaðan björgunarsveitamann sem fyrirmynd.
Framfarir einstaklingsins. Með athafnanáminu getur einstaklingurinn ekki annað en sýnt framfarir á flestum sviðum.
Náttúran. Hver kannast ekki við það að komast eitthvað út í náttúruna og finna hvernig battaríin hlaðast og stressið minkar. Við lærum líka að meta náttúruna og það sem hún hefur uppá að bjóða.
Stuðningur fullorðinna. Hlutverk fullorðinna er að skapa spennandi og krefjandi aðstæður fyrir börnin að takast á við, og það er einnig hlutverk fullorðinna að gæta þess að börnin fari sér ekki að voða þegar þau eru að reyna eitthvað sem getur verið varasamt, sé ekki farið varlega. Þau læra nú best með að fá að prófa og gera hlutina sjálf. 
 
Hvað er skátastarf 

Skátastarf er ...

Alþjóðastarf. Því að Íslenskir skátar (börn, unglingar og fullorðnir) starfa innan vébanda Bandalags íslenskra skáta. Bís er aðilli að Alþjóðabandalagi skáta (WOSM) og Alþjóðabandalagi kvennskáta. (WAGGGS)
Æskulýðshreifing.  Fyrir börn, með börnum og studd af fullorðnum. Þar sem fullorðnir skapa ögrandi aðstæður fyrir börn og styðja þau.
Af fúsum og frjálsum vilja.  Öllum opin því að engin er neyddur til að vera skáti, og þar finna margir eitthvað fyrir sig. Einstaklingar sem ekki finna sig í t.d. Hópíþróttum.
Óháð.   Því að skátahreyfingin er ekki pólitísk hreifing og ekki bundin af trúarbrögðum. Þótt að það segi í skátaheitinu aðgera skyldu mína við guð og ættjörðina. þá er ekki sagt HVAÐA guð.
Jafningjafræðsla. Þar sem að einhver sem er fremstur meðal jafningja er valin sem foringi helst ekki meira en ca 2 árum eldri, og hann lætur Skátana í flokknum gera ýmis verkefni til að ná settu marki.
Gaman. Eða eins og Baden Powell sagði “ Skátalíf á að vera gaman því að ef það er ekki gaman þá er það ekki skátalíf”
Fjölbreytt. Útivist – læra að bjarga sér í náttúrunni – rötun með kort, áttavita og gps – Handlagni – Skyndihjálp – almenn mannleg samskipti – Alþjóðastarf  svo fátt eitt sé nefnt.
Samvinna. Börnin læra að vinna saman og gera hlutina með öðrum. 
  
Skátar 

Hvernig er aldursskiptingin innan skátanna?

Aldursskiptingin er þannig að yngstir eru...

Ljósálfar. Það er 7 og 8 ára börn. Það eru mjög fá félög á landinu sem hafa ljósálfaflokka hjá sér. Við hér sunnan menn erum t.d. ekki með ljósálfastarf.
Ylfingar eru 9 og 10 ára
Skátar   eru á aldrinum 11 til 14 ára
Dróttskátar eru 15-17 ára. 
 
Eldri skátar

En eldri skátarnir er einhver aldursskipting hjá þeim?
Nei það er ekki aldursskipt fyrir skáta eldri en 18 ára, en þeir hafa samt um eitthvað að velja á milli eins og...

Roverskátar. Geta þeir orðið sem eru 18 ára og eldri. Þá eru þau búin með dróttskátaprógramið, en vilja samt halda áfram að skátast, en vilja ekki vera foringjar, og margir þeirra fara að ferðast saman, verða svona einskonar skátaferðafélag með fundarívafi.
Gilwell skátar. Þeir skátar sem hafa tekið Gilwell námskeið og vilja vera áfram í skátastarfi, sem foringjar, stjórnarmenn, vinna fyrir bandalagið eða eitthvað fleirra í þeim dúr. Gilwell námskeiðið er æðsta foringjanámskeiðið sem skátar taka. Sannkallaður skáta háskóli og það þarf að vera orðin 18 ára til þess að mega fara á Gilwell. 
St. Georgs gildin eru félagsskapur fyrrverandi og núverandi skáta, svo og annarra þeirra sem áhuga hafa á skátahreyfingunni og vilja sinna hugsjónum skátahreifingarinnar. Gildisskátar geta þeir orðið sem orðnir eru 18 ára, og hafa unnið gildisheitið. 
  
Skátastarf og foreldrar 

Er samstarf á milli foreldra og skáta nauðsyn?

Já. samstarf er nauðsyn. til þess að...

Foringjarnir geti tekið tillit til séreinkenna og heilsu barnanna og óska foreldra 
Foreldrarnir skilji uppeldisgildi skátastarfs og þær leiðir sem farnar eru í skátastarfi (t.d. hlutverk flokksforingja og skátaflokka, börn stjórni börnum og "athafnanám") Baden Powell orðaði það “learning by doing”
Foreldrar reyni að efla áhuga þeirra og hvetji börnin til þátttöku í skátastarfi.
Foreldrar og skátahreyfingin hvetji börnin  í sameiningu til að sýna frumkvæði, ábyrgð og sjálfstæði
Vekja áhuga foreldra á skátastarfinu sem gæti leitt til þess að þau taki að sér foringja- eða stjórnunarstörf. Eins og ég gerði.

Hver er þá ávinningurinn með slíku samstarfi?

Ávinningurinn er betri skilningur fjölskyldna á skátastarfi og þörfum skátanna til að fá að spreyta sig við hin ýmsu verkefni sem þau taka sér fyrir hendur. ( á myndinni er verið að poppa poppkorn yfir opnum eldi á ljósanótt 2002)

Hvernig geta foreldrar komið að skátastarfi?

Foreldrar geta komið að skátastarfi t.d.  Með því að ...

Aðstoða við eða skipuleggja og framkvæma fjáraflanir  fyrir ákveðin verkefni barnanna
Aðstoða við efnisöflun . T.d með því að útvega trönur og fleyrra þegar skátamót standa fyrir dyrum.
Aðstoða við og/eða í útilegur 
Aðstoða þegar eitthvað mikið stendur til hjá félaginu 
Vera tengiliður milli skáta og foreldra vera einskonar foreldraflokkur
Taka að sér foringjastörf
Þetta eru nokkrar hugmyndir um hvernig væri hægt að standa að starfi milli foreldra og skáta. 

Skátastarf

Hvað erum við að gera í skátunum?

Við höldum fundi, 
förum í ferðalög, 
förum á skátamót og 
berum okkar sérkenni. Og förum í skrúðgöngur, og sumir segja að eitt sérkennið sé að við borðum brendan mat.

Hvað gerum við á fundum? Það væri alltof langt mál að telja það allt upp hér en við tildæmis...

Syngjum, bæði ný og gömul skátalög.
vinnum verkefni af ýmsum toga s.s læra rötun, skyndihjálp, náttúruvernd, hnúta og margt fleira. 
Förum í ýmiskonar leiki svo sem Kims leiki sem eru leikir ætlaðir til að efla athygglisgáfurnar svo..
Syngjum við enn meira. Og reynum eftir fremsta megni að viðhalda gömlum hefðum sem hafa myndast í skátahreifingunni í gegnum tíðina. Á sama tíma reynum við að koma með ýmsar nýungar 

Hvað er gert í skátaferðalaögum?

Við förum í ýmsa leiki s.s. póstaleiki þar sem reynir á það sem að við erum búin að vera að læra. 
Eldum úti og jafnvel yfir opnum eldi og þá er ýmislegt prufað svo sem að spæla egg, sjóða súpu, baka brauð og margt margt fleirasem er reynt.
lærum að ganga vel um náttúruna og nauðsyn þess að skilja við náttúruna á sama hátt og við viljum koma að henni. 
Og lærum að bjarga okkur almennt, og þá gildir einu hvort það sé að sauma tölu á flík, elda, rata, gera við tjaldið eða svefnpokann.

Hver eru okkar sérkenni?        

Þau eru...

skátakveðjan, 
skátabúningurinn   með sínum öllum sínum merkjum, 
skátaklúturinn   sem segir okkur hverskonar skáti er á ferðinni. Ljósbláir klútar eru fyrir ljósálfana, gulir klútar eru fyrir ylfinga, rauðir klútar eru fyrir skáta og dróttskáta, og drappaðir/ljósrauðir með skoskum köflóttum taubút að aftan er fyrir Gilwell skáta.
Hugmyndafræðin. Það sem um var fjallað í glærunni um skátaaðferðina.
Skátastarf er fyrir alla, allt frá 7 – 127 ára. Svo er bara svo gaman að vera skáti og vera maður sjálfur og læra alltaf eitthvað nýtt. Og öll ferðalögin sem við förum með vinum okkar úr skátunum og fleirum.