Flóðhestaútilega 22.-23. mars
Helgina 22.-23.mars fóru Flóðhestar úr 1.Sveit Dreng í svokallaða "Survival" útilegu við Snorrastaðatjarnir. Markmiðið með útilegunni var að strákarnir lærðu ýmislegt sem viðkemur því að bjarga sér og auðvitað hafa gaman að þessu öllu saman.
Það var flokksforingi Flóðhesta, Sveinn, sem skipulagði og sá um þessa útilegu.
Með Flóðhestum í för vorum við Árni, flokksforingi Úlfa; og ég (Helgi), sveitarforingi Drengjasveitarinnar.
Mæting var upp í skátahús um klukkan 9, laugardags morguninn og frá skátahúsinu var gengið upp í Heiðaból. Allir strákarnir voru með léttan farangur með sér, smá nesti til að borða á leiðinni en öðrum farangri var skutlað á staðinn.
Við komum við heima hjá Bubba til að fá lykil að skálanum (vöktum Bubba í leiðinni) og heima hjá mér til að ná í myndavél.
Við stoppuðum við Grímshól á leiðinni og borðuðum nestið okkar í frábæru útsýni.
Þegar við komum að Snorrastaðatjörnum beið okkar Vilborg, mamma hans Sveins, með farangurinn okkar og Róbert (sem hafði barasta gleymt útilegunni) og gengum við síðasta spottann upp í skála með allan farangurinn á bakinu.
Þegar í skálann var komið tók þó ekki við nein rólegheita dagskrá heldur var plan dagsins kunngjört.strákarnir áttu að halda litla kvöldvöku í skóginum um kvöldið og til þess þurfti að veiða mat til að borða, kveikja varðeld til að grilla matinn, safna eldivið í varðeldinn og fleira.
Veðrið lék ekki beinlínis við okkur þessa helgi en það var ekkert sem Drengsveitungar ráða ekki við.
Vert er að taka fram að strákarnir veiddu allan mat sjálfir sem borðaður þetta kvöld. Strákarnir voru svo heppnir að næla í sjaldgæfan fisk í tjörnunum, svokallaða Hamborgara en þeir koma einmitt fjórir saman í pakka með brauði og flutu þarna úti á tjörnunum.
Ætlunin var að kveikja eld eins og örgustu villimenn, með aðeins eldspýtur og klósettpappír að vopni, en þar sem það hafði verið nokkur úrkoma yfir daginn gáfust allir upp á því og tendraður var þykjustuvarðeldur með kolum og olíu.
Þetta varð þó hinn fínasti eldur og dugði vel til að grilla hamborgarana sem etnir voru af græðgi eftir erfiðan dag.
Þegar allir höfðu etið fylli sína flúðum við undan kuldanum inn í skála. Þar spiluðum við bæði Actionary og Pictionary langt fram á kvöld.
Á sunnudeginum sváfum við út, drusluðumst á lappir seint og síðarmeir (sumir þó seinna en aðrir og var undirritaður seinastur úr bóli).
Fyrir utan skálann voru nokkur tré í pottum. Mér skilst að þessi tré hafi verið rúmt ár í pottunum og séu varla á lífi lengur. En við drifum okkur út að gróðursetja. Svo er bara að bíða og sjá hvort eitthvað verði úr þessu.
---
Ég þakka kærlega fyrir mig og fyrir að hafa verið boðið í þessa skemmtilegu útilegu.
Helgi Reyniss
Sv.for. Drengjasveitar.