Lög skátafélagsins Heiðabúa
1. kafli - Heiti félagsins og markmið
1. grein
Nafn félagsins er Skátafélagið Heiðabúar. Lögheimili þess og varnarþing er í Reykjanesbæ. Starfssvæði er Reykjanesbær, Garður og Sandgerði.
2. grein
Markmið félagsins er að þroska börn og ungt fólk til að verða ábyrgir, sjálfstæðir og virkir einstaklingar í þjóðfélaginu.
Markmiðum sínum hyggst félagið ná meðal annars með:
· Hópvinnu til að þroska tillitssemi, samstarfshæfileika, ábyrgð og stjórnunarhæfileika.
· Útilífi til að efla líkamsþrek og vekja áhuga á náttúrunni og löngun til að vernda hana.
· Viðfangsefnum af ýmsu tagi til að kenna skátum ýmis nytsöm störf, sjálfum þeim og öðrum til heilla.
· Þátttöku í alþjóðastarfi skátahreyfingarinnar til að gefa skátum tækifæri til að kynnast ungu fólki í öðrum löndum, háttum þess og menningu.
3. grein
Félagið er aðili að Bandalagi íslenskra skáta og ber að starfa eftir lögum þess og reglugerðum.
2. kafli - Innganga og skyldur félagsmanna
4. grein
Til að gerast félagi þarf viðkomandi að vera að lágmarki 7 ára. Skriflegt leyfi foreldris eða forráðamanns þarf sé viðkomandi ekki sjálfráða.
5. grein
Hver og einn telst félagi ef félagsstjórn eða fulltrúi hennar hefur samþykkt inntökubeiðni hans.
Óski einhver eftir að hætta störfum skal viðkomandi tilkynna það sveitarforingja, eða félagsstjórn félagsins skriflega.
6. grein
Gerist félagi brotlegur við lög þessi eða spillir áliti félagsins að mati félagsstjórnar getur hann sætt brottrekstri úr félaginu. Skal þá félagsstjórn tilkynna viðkomandi það skriflega.
3. kafli - Stjórnun félagsins
7. grein
Aðalfundur fer með æðsta vald félagsins en félagsstjórn milli aðalfunda.
Aðalfund skal halda fyrir febrúarlok ár hvert. Skal félagsstjórn boða til hans með minnst tveggja vikna fyrirvara.
8.grein
Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa allir starfandi skátar 18 ára og eldri séu félagsgjöld viðkomandi í skilum og einn forráðamaður hvers skáta yngri en 18 ára, séu félagsgjöld viðkomandi skáta í skilum. Enginn einn forráðamaður má þó fara með meira en eitt atkvæði.
Seturétt sem áheyrnarfulltrúar á aðalfundi hafa allir félagar og forráðamenn þeirra sé skátinn yngri en 18 ára svo og fulltrúi úr stjórn BÍS. Félagsstjórn er heimilt að bjóða öðrum að sitja aðalfund sem áheyrnarfulltrúar. Áheyrnarfulltrúar hafa málfrelsi og tillögurétt en ekki atkvæðisrétt.
9. grein
Verkefni aðalfundar eru:
a. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
b. Skýrsla stjórnar og umræður um hana.
c. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins til umræðu og afgreiðslu.
d. Lagabreytingar.
e. Kosning stjórnar.
f. Kosning þriggja varamanna stjórnar.
g. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
h. Önnur mál.
10. grein
Stjórn félagsins skal skipuð 7 aðalmönnum og þremur varamönnum: Félagsforingja, aðstoðarfélagsforingja, ritara, gjaldkera og þremur meðstjórnendum. Allir stjórnarmeðlimir eru kosnir sérstaklega. Stefnt skal að því að minnst einn stjórnarmanna sé kjörinn úr hópi forráðamanna starfandi skáta undir 18 ára í félaginu.
11. grein
Verksvið stjórnar eru meðal annars fjármál, húsnæðismál, umsjón með eignum félagsins svo og öðru sem þarf til að tryggja öfluga starfsemi félagsins í samvinnu við foringjaráð félagsins.
Stjórn félagsins er heimilt að setja reglugerðir um einstaka þætti félagsstarfsins, t.d. blaðaútgáfu, skemmtanahald, skálaferðir o.fl.
Félagsforingi er formaður stjórnar og boðar til stjórnarfunda að minnsta kosti mánaðarlega á tímabilinu ágúst – maí. Stjórnarfundur telst löglegur ef minnst 5 atkvæðisbærir stjórnarmeðlimir eru mættir. Ákvarðanir stjórnar ákvarðast með einföldum meirihluta.
12. grein
Foringjaráð félagsins skal skipað sveitar- og aðstoðarsveitarforingjum auk eins fulltrúa sem skipaður er af stjórn. Foringjaráð getur boðið öðrum setu á einstökum fundum ráðsins og hefur viðkomandi tillögurétt. Á fyrsta fundi foringjaráðs, sem haldinn skal fyrir 20. ágúst, skal ráðið kjósa sér ritara úr hópi sveitarforingja. Fulltrúi stjórnar er formaður ráðsins. Formaður boðar til og stýrir foringjaráðsfundum auk þess sem hann stýrir störfum ráðsins á starfsvetrinum. Ritarinn gegnir störfum formanns í forföllum hans og ritar fundargerðir. Aðalmarkmið foringjaráðs skal vera að styrkja starf skátasveitanna og aðstoða og leiðbeina foringjum í störfum þeirra. Foringjaráð fundar að jafnaði mánaðarlega. Foringjaráð fer með almenna stjórnun og skipulagningu á innra starfi félagsins í samráði við félagsstjórn. Ákvarðanir eru teknar með einföldum meirihluta viðstaddra foringjaráðsmanna. Ákvarðanir mega þó ekki vera gegn vilja eða stefnu stjórnar.
Foringjaráð og allir meðlimir félagsstjórnar skulu funda saman að jafnaði ársfjórðungslega. Á þeim fundum er almennt skátastarf félagsins skipulagt. Félagsforingi boðar til ársfjórðungsfunda í samráði við formann foringjaráðs.
13. grein
Óski 12 atkvæðisbærra Heiðabúa eða fleiri skriflega eftir að boðað sé til aðalfundar er stjórn skylt að verða við því og boða aðalfund eigi síðar en tveimur vikum eftir að slík ósk er borin fram.
14. grein
Félagsforingi skipar sveitarforingja að fengnum tillögum foringjaráðs. Sveitarforingjar skipa flokksforingja.
4. kafli – Annað
15. grein
Félagið starfar í tengslum við St. Georgs gildið í Keflavík.
16. grein
Félagsstjórn ákveður félagsgjald til félagsins.
17. grein
Hætti félagið störfum, skal St. Georgs gildinu í Keflavík falið umsjá eigna þess, þar til það hefur störf á ný. Leggist starfsemi beggja félaganna niður, skal Reykjanesbæ falin umsjá eignanna. Skulu þær þá notaðar til heilbrigðrar æskulýsstarfsemi í, samráði við stjórn Bandalags íslenskra skáta, þar til skátastarf verður endurvakið.
Lögum þessu verður aðeins breytt á aðalfundi og skulu tillögur að lagabreytingum berast stjórn í síðasta lagi tveimur vikum fyrir aðalfund. Framlagðar lagabreytingartillögur skulu liggja frammi í skátaheimilum félagsins í minnst eina viku fyrir aðalfund. Lögum verður aðeins breytt ef tveir þriðju hlutar kosningarbærra fundarmanna greiða atkvæði með lagabreytingartillögum.
19. grein
Lög þessi eru sett á aðalfundi Skátafélagsins Heiðabúa 2009 og öðlast þegar gildi.
Samþykkt á aðalfundi 26 Febrúar 2009
Ná í lög á PDF formi
Ná í gömlu lög félagsins á PDF