HomePrintMail

 

Skátafélagið Heiðabúar býður upp á  þjónustu tengda íslenska fánanum, fyrirtæki, stofnanir og einstaklingar geta allir nýtt sér þessa þjónustu. Um leið og verið er að tryggja sér fagmannlega og góða þjónustu við meðhöndlun íslenska fánans er einnig verið að styrkja skátastarfið í Heiðabúum.

Heiðursvörður.
Skátafélagið Heiðabúar tekur það að sér að standa heiðursvörð við hin ýmsu tækifæri. Hvort sem það eru stórafmæli, vígsluathafnir, viðhafnarmóttökur eða hvað annað sem ykkur dettur í hug. Skátar í fullum skátabúning (eða ekki ef þið hafið einhverjar aðrar hugmyndir) munu standa heiðursvörð með íslenska burðarfána þann tíma sem þess er óskað. Við þessi sömu tilefni er hátíðlegt að setja eða slíta athöfnum með því að framkvæma fánakveðju.
Heiðursvörður skáta er klassískur og skemmtileg tilbreyting frá öðrum siðum og venjum.

Nánari upplýsingar & pantanir.
Allar nánari upplýsingar og pantanir á þjónustunni veitir:
Starfsmaður skátafélagsins
tölvupóstur: hb@skatafelag.is  
GSM sími: 860 4470