HomePrintMail

 

Fánareglurnar eru margar og virðast oft á tíðum vera heldur flóknar, hér fyrir neðan birtist úrdráttur úr helstu reglum er tengjast hinum almenna borgara en einnig eru birtar almennar fánareglur líkt og þær eru settar fram á vefsíðu fosætisráðuneytisins. 

Helstu reglur

Hlutföll fána og stangar
Þegar fánastöng er fest í jörðu á lengd hennar að vera fimm sinnum breidd fánans, en 2 1/2 sinnum, standi stöngin skáhallt út frá húsi.

Flaggtími
Fána skal eigi draga á stöng fyrr en klukkan sjö að morgni og að jafnaði skal hann eigi uppi vera lengur en til miðnættis.
- Ef flaggað er við útisamkomu, opinbera athöfn, jarðaför eða minningarathöfn má fáni vera uppi lengur en til sólarlags eða svo lengi sem athöfn varir, en þó aldrei lengur en til miðnættis.

Fáni í hálfa stöng
Ef draga á fána í hálfa stöng, er hann fyrst dregin að húni, en síðan felldur svo, að 1/3 stangarinnar sé fyrir ofan efri jaðar fánans. Við jarðarfarir á að draga fánann að húni þegar greftrun er lokið og skal hann blakta þar til kvölds, til virðingar við hinn látna.

Reglur teknar af vef forsætisráðuneytis

Leiðbeiningar um meðferð og notkun íslenska fánans.

A. Um notkun hins almenna þjóðfána

A.1. Heimild til að nota fánann
Öllum er heimilt að nota hinn almenna þjóðfána, enda sé farið að lögum og reglum, sem um hann gilda.

Æskilegt er að almenningur dragi fána á stöng á fánadögum, þá daga sem ríkisfáninn er hafður uppi á opinberum byggingum, sbr. B.1.b. hér á eftir. Fánann má nota við öll hátíð-leg tækifæri, jafnt þau sem tengjast einkalífi sem önnur eða á sorgarstundum, þá dreginn í hálfa stöng.

A.2. Fánastöng og fánastærð
 
a. Fánastöng getur verið annaðhvort upp af húsi eða út frá hlið þess. Skal stönginni komið fyrir á smekklegan hátt. Einnig má reisa fánastöng á jörðu.

Á efri enda fánastangar er æskilegt að sé hnúður með skoruhjóli, sem fánalínan leikur lið-lega í. Neðarlega á stönginni eða í beinu framhaldi af henni sé snerill til að festa fána-snúruna.
Hentugt er að fánastöng sé þannig komið fyrir að auðvelt sé að losa hana eða fella.
Fánastöng skal vera einlit.

b. Þegar fánastöng er reist á jörðu skal leitast við að hafa hlutfall milli stærðar fána og lengdar fánastangar við hæfi. Æskilegt er að miða við að breidd fánans sé 1/5 af lengd fána-stangar. Ef stöng er upp af húsþaki, sé hún þrisvar sinnum breidd fánans að lengd, en 2½ sinnum, ef hún er skáhallt út frá húsvegg, en stöng, sem myndar rétt horn við húsvegg, sé tvöföld breidd.

c. Á skipum skal stönginni komið fyrir í skut eða á ásenda aftur af því siglutré, sem aftast er.
Ef um smáskip eða bát er að ræða, má draga fánann að
hún á siglutré eða aftasta siglutré, ef fleiri eru en eitt.

A.3. Fánatími
Fána skal eigi draga á stöng fyrr en klukkan sjö að morgni og skal hann að jafnaði eigi vera lengur uppi en til sólarlags og aldrei lengur en til miðnættis.
Ef flaggað er við útisamkomu, opinbera athöfn, jarðarför eða minningarathöfn, má fáni vera uppi lengur en til sólarlags eða svo lengi sem athöfn varir, en þó aldrei lengur en til miðnættis.
Að því er varðar fána á bátum og skipum, skal leita leiðbeininga hjá Landhelgisgæslu Íslands og Siglingamálastofnun ríkisins.

A.4. Fáni dreginn að hún
Þegar draga á fána að hún, er rétt að halda honum samanbrotnum undir holhendi. Festingar viti fram (venjulega sigurnagli eða þverspýta að ofan, en lykkja að neðan). Þegar fánalínan hefur verið leyst, er sá endi hennar, sem vindur ber lengra frá stönginni, hnýttur með fánahnút við efri festingu fánans, en hinn endinn við lykkjuna að neðan, einnig með fánahnút. Fáninn er dreginn með jöfnum hraða að hún og skal efra horn hans falla að húninum. Fánalínan skal vera strengd.

A.5. Fáni dreginn niður
Þegar fáni er dreginn niður, er það gert með jöfnum, hægum hraða. Fáninn er leystur af neðri festingu, tekinn saman undir holhendi og síðan leystur frá efri festingu. Fána-snúran er jöfnuð, snúruendar lagðir saman og hnýttur á þá lykkjuhnútur og snúran síðan vafin um snerilinn og fest traustlega.

A.6. Fáni dreginn í hálfa stöng
Ef draga á fána í hálfa stöng, er það gert með þeim hætti, að fáninn er fyrst dreginn að hún og síðan felldur, svo að ? stangarinnar sé fyrir ofan efri jaðar fánans.
Við jarðarför eða aðra sorgarathöfn skal fáninn dreginn að hún, þegar henni er lokið, og skal hann blakta þar uns fánatíma lýkur.


A.7. Fáni á líkkistu
Sé líkkista sveipuð þjóðfánanum, skal krossmarkið vera við höfðalag og eigi skal leggja neitt ofan á fánann. Hvorki má kasta rekunum á fánann né láta hann síga niður í gröf.

A.8. Fánahylling
Þegar hylla á fána, er hann borinn á hyllingarstað samanbrotinn og liggjandi á öxl eða hand-legg þess, sem kemur með hann, eða þaninn milli handgripa fjögurra til átta manna. Gæta skal þess að fáninn verði ekki fyrir hnjaski.

Fari fánahylling fram undir berum himni, er fáninn dreginn að hún. Fari hyllingin fram innan húss, er æskilegt að fáninn sé borinn inn á stöng, sem komið verði fyrir á hyllingar-stað.

A.9. Frágangur fána eftir notkun
Þegar ganga skal frá fána eftir notkun, er hann brotinn í fernt eftir endilöngu og vafinn upp þannig að einungis blái liturinn snúi út. Fáninn skal ávallt geymdur á öruggum stað.
Fáni, sem hefur blotnað, skal eigi brotinn saman til geymslu fyrr en hann hefur þornað.

A.10. Íslenski fáninn með öðrum þjóðfánum
Að jafnaði eru erlendir þjóðfánar einungis notaðir hér á landi af opinberum fulltrúum erlendra ríkja eða milliríkjastofnunum. Á milliríkjamótum eða öðrum fjölþjóðlegum sam-komum má hafa uppi þjóðfána erlendra ríkja ásamt íslenska fánanum.

Í röð þjóðfána skal íslenski fáninn vera lengst til vinstri séð frá áhorfanda (eða þegar komið er að fánastað), en öðrum þjóðfánum raðað til hægri frá honum í stafrósröð íslenskra heita hlutaðeigandi ríkja.
Sé þjóðfánum hvirfilraðað, má íslenski fáninn vera í miðju milli hinna fánanna.

Leitast skal við að hafa alla fánana af sömu stærð. Ef fánarnir eru á stöngum og ekki unnt að draga þá alla samtímis að hún eða niður, skal íslenski fáninn dreginn fyrstur að hún og síðastur niður.
Ekki skal raða merkjum eða fánum sveitarfélaga, félaga eða fyrirtækja inn á milli þjóð-fána. Slíkir fánar skulu hafðir í röðum eða þyrpingum aðskildum frá þjóðfánum.


Heimilt er, ef heiðra skal við sérstakt tækifæri ákveðna erlenda þjóð eða milli-ríkja-stofnun, t.d. Sameinuðu þjóðirnar eða Evrópuráðið, að hafa fána slíks aðila milli íslenska fánans og þess þjóðfána, sem annars ætti að vera næstur honum.

Aldrei skal hafa tvo eða fleiri þjóðfána á sömu stöng. Sé íslenski fáninn og erlendur þjóð-fáni hengdir á vegg á stöngum, sem liggja í kross, skal íslenski fáninn vera til vinstri séð frá áhorfanda og stöng hans yfir stöng hins fánans.

A.11. Ýmsar reglur um fánann
a. Þegar fáni er dreginn á stöng eða dreginn niður, skal gæta þess að hann snerti ekki jörð, vatnsyfirborð eða gólf.

b. Sé fáni á stöng við altari, ræðustól eða ræðuborð, leiksvið eða annan sambæri-legan stað, skal hann vera vinstra megin séð frá áhorfanda. Séu fánarnir tveir, skulu þeir vera sinn til hvorrar handar.
Hvorki skal sveipa ræðustól þjóðfánanum né hafa hann framan á ræðustól.

Eigi má nota þjóðfánann til að sveipa með honum styttu eða annan hlut, sem á að afhjúpa, og aldrei skal nota hann sem borðdúk eða gólfábreiðu

.



A.12. Burðarfáni
Þegar um burðarfána er að ræða, þ.e. þjóðfána á burðarstöng, má festa fánann á stöngina.