
Lögskipaðir fánadagarFæðingardagur forseta Íslands (14. maí)
Nýjársdagur
Föstudagurinn langi
Páskadagur
Sumardagurinn fyrsti
1. maí
Hvítasunnudagur
Sjómannadagurinn
17. júní
1. desember
Jóladagur
Alla ofangreinda daga skal draga fána að húni, nema föstudaginn langa, þá í hálfa stöng.
Fána skal ekki draga á stöng fyrr en klukkan sjö að morgni og að jafnaði skal hann ekki vera uppi lengur en til sólarlags og aldrei má íslenski fáninn vera á stöng lengur en til miðnættis.
Ef flaggað er við útisamkomu, opinbera athöfn, jarðarför eða minningarathöfn má fáni vera uppi lengur en til sólarlags eða svo lengi sem athöfn varir, en þó aldrei lengur en til miðnættis.
Landsmönnum öllum er að sjálfsögðu heimilt að draga fánann að húni alla daga ársins.