HomePrintMail

 

Íslenski fáninn

Sagan

Íslenski fáninn hefur verið notaður í núverandi mynd síðan 1915 nánar tiltekið þann 19.júní það ár. Hugmyndin að þessum fána var orðin meira en 10 ára gömul áður en hún varð að veruleika, það var Matthías Þórðarson sem átti hugmyndina að fánanum og áttu litirnir að tákna fjallabláman, ísinn og eldin. Miklar deilur urðu um það hvernig fánin skildi líta út og stóð valið aðallega á milli núverandi þjóðafána og hinum svokallaða Hvítbláma sem fjallað er um hér að neðan. Það fór svo fyrir rest að fáninn sem við þekkjum sem þjóðfána íslendinga varð fyrir valinu eflaust að flestra mati landi og þjóð til heilla.


En hvernig voru upphaflegu fánarnir þá?

 

Upphafið að því að Ísland eignaðist sinn eiginn fána má rekja aftur til daga Jörundar hundadagakonungar en hann skipaði svo fyrir árið 1809 þegar að hann tók völd hér á Íslandi að Ísland skildi eiga sinn eigin fána sem skyldi vera ljósblár með þremur þorskum í vinstar horni. Þessi fáni var fyrst dreginn að húni þann 12. júlí 1809. Fáninn var ekkert notaður eftir að Jörundur var hrakinn frá völdum.

 

 

Næsta hugmynd að þjóðfána fyrir íslendinga var hinn svokallaði fálkafáni. Þessi fáni var þannig gerður að hann var blár með hvítum fálka í miðið. Þessi fáni kom þó ekki fram í dagsljósið fyrr en tæplega 70 árum á eftir þorskafána Jörundar. Hugmyndin er kominn frá Sigurði Guðmundsyni listmálara og átti þessi fáni nokkuð góðu gengi að fagna hér á landi og var almennur vilji til að nýta fálkann sem þjóðartákn frekar en þorskinn. Ætli það hafi ekki þótt fínna að hafa hin virðulega fálka í fararbroddi frekar en þorskin sem þó hélt lífinu í þjóðinni. Fáninn var fyrst dregin að húni árið 1873 á Þingvöllum.

 

En ein hugmyndin að þjóðfána sést hér til hliðar. Það var Einar Benediktsson sem átti hugmyndina að þessum fána en hann taldi það sæma kristinni þjóð líkt og íslendingum að hafa kross sem tákn í þjóðfána sínum, enn á ný voru menn með bláa bakgruninn sem að Jörundur kynnti á sínum tíma. Þessi fánagerð var nokkuð vinsæl hér á Íslandi en þessu fána var fyrst flaggað sumarið 1897. En menn voru ekki á eitt sáttir við þennan fána því hann þótti of líkur fánum annara þjóða.